Algengar spurningar

Get ég breytt eða hætt við pöntun?

Já, innan 12 klukkustunda frá pöntun. Þegar pöntunin hefur verið send eru breytingar ekki lengur mögulegar.

Hvert sendið þið?

Aðeins innan Íslands í bili.

Hvað tekur afhending langan tíma?

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Tími frá pöntun til afhendingar er yfirleitt 1–4 virkir dagar fyrir vörur á lager. Forpantanir berast innan 2–4 vikna. Þú mátt hætta við forpöntun ef tafir verða. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang.

Hvar eru vörurnar framleiddar?

Vörur okkar eru framleiddar á Íslandi. Við veljum framleiðsluaðila okkar vandlega til að tryggja að vörurnar okkar standist okkar kröfur um gæði og útlit.

Hver er skilastefnan?

14 dagar frá pöntunardegi á óskemmdum veggspjöldum. Vörur skulu vera í upprunalegum umbúðum með öllum merkimiðum og innsiglaðar vörur má ekki opna. Engin skil eða skipti á útsöluvörum.

Hvað ef varan er gölluð?

Við sendum nýtt eintak eða endurgreiðum að ósk viðskiptavinar. Sendingarkostnaður er endurgreiddur fyrir gallaðar vörur. Sendu okkur tölvupóst með mynd innan 7 daga frá afhendingu.

Hvernig pappír er notaður?

250 og 300 gsm pappír, mött áferð.